Þá er komið að því, ég er á leiðinni heim og það í 2 vikur.

Júlímánuður er annars búinn að fara vel með mig þrátt fyrir ýmiss konar stressheit þar sem ég kláraði nýlega starfsnámið mitt hjá Océ. Ástæðan fyrir stressheitin var aðallega þar sem ég þurfti að halda fyrirlestur fyrir framan helstu yfirmenn deildarinnar sem ég var hjá, en eins og með allt annað þá reddaðist það og allir voru sáttir (að mínu mati). Þau voru einnig svo góðir að gefa mér 100 kg bók um 130 ára sögu fyrirtækisins og flotta leðurstílabók.
Þess fyrir utan þá er einnig búið að vera heilmikið um að vera hér í Nijmegen þar sem hin árlega 4 daga ganga var núna þessa helgi. 4 daga gangan eða 4 daagse eins og það er kallað hérna virkar þannig að þúsundir manna á öllum aldri ganga daglega 50, 40 eða 30 km um Nijmegen frá þriðjudegi til föstudags. Partyhöldin hefjast þó iðulega á sunnudeginum þannig að fyrir suma getur þetta líka verið annars konar þrautraun J

Af dýrlingagötunni er það að frétta að þó að nú er ég orðinn „Palli einn í heiminum“ á ný þar sem Bärbel kláraði ritgerðina sína og fluttist aftur til Kölnar. Hún er þó enn að pæla í sínum málum svo við sjáum hvað setur í framtíðinni. Ég mun þó alla vega vera áfram hér í Nijmegen í a.m.k. eitt ár þar sem þegar ég kem til baka frá klakanum þá tekur við ritgerðarskil og –vörn í lok ágúst. Síðan byrjar nýtt ævintýri þar sem ég byrja að vinna á ný fyrir Océ, í innri endurskoðenda deildinni ásamt því að ég mun líka byrja á mínum öðrum master í enduskoðun og fjármálastýringu.

Spennandi tímar því framundan, en þó er ekki laust við það að mér dettur þetta lag í hug öðru hvoru (fyrir utan kannski byrjunina á laginu 
)
http://www.youtube.com/watch?v=xZbKHDPPrrc
Que Sera Sera Whatever will be will be, the future's not ours to see Que Sera Sera
Well the time is finally up, I’m going home for 2 weeks.

I can only say that July has been nice to me even though it has also been a bit stressful as well as I just finished my internship at Océ. The reason for my stress was mainly because I had to have a presentation on my last in front of some of the big managers within the department that I was working at. But as always, it went ok and I think everybody was happy. They were even so kind that they gave me a 100kg book about the company´s 130 years old history as well as a nice leather booklet.
Besides that, many things have been going on here in Nijmegen as the annual 4 day march was this weekend. The 4 day march or 4 daagse as the Dutch call it is about thousand people in all ages walking 50, 40 or 30 km per day around Nijmegen from Tuesday to Friday. The party in Nijmegen starts nevertheless on Sunday so some people also try to challenge themselves in a different matter J

From Sint Annastraat, the latest news is that I am all by myself again as Bärbel recently finished her thesis, so she moved back to Cologne. I will nevertheless remain here in Nijmegen for at least 1 year more as when I come back from Iceland I need to hand in and defend my thesis. Once that is done, I will start another adventure as I am starting a new job at Océ, in the internal auditing department along with taking another master program in Accounting and Control.

So exciting times ahead, but I can’t help thinking sometimes about this song (except for the beginning of it
)
http://www.youtube.com/watch?v=xZbKHDPPrrc
Que Sera Sera Whatever will be will be, the future's not ours to see Que Sera Sera